Image hosted by Photobucket.com Image hosted by Photobucket.com Image hosted by Photobucket.com

Sunday, June 10, 2007
Leti!!

Jæja, kannski kominn tími til að skrifa eitthvað nýtt á þess síðu mína.

Þið eruð kannski hætt að lesa ruglið í mér, en ég er búin að vera frekar löt síðustu daga.
Er búin að liggja yfir TV seríum í nokkra mánuði - frekar húkt á þessu rugli.
Svo er líka búið að vera mikið að gera í sambandi við brúðkaupið - aðeins 28 dagar í daginn :)

En ég er að uppfæra myndirnar eða a.m.k. að reyna það, þannig að það verða komnar nýjar myndir eftir kannski nokkra daga vona ég - just x your fingers...

Katy

Posted at Sunday, June 10, 2007 by litla_ljot
Make a comment  




Friday, January 05, 2007
Allt um stráka!!!

Strákar eru eins og kanínur ..... hoppa frá holu til holu

Strákar eru eins og bílar ..... ef ma'r passar sig ekki á þeim þá lendir ma'r undir þeim

Strákar eru eins og strætó ..... ef þú missir af þeim fyrsta tekur þú bara þann næsta

Strákum má líkja við tissjú .... þegar ma'r er búin að nota það, þá hendir ma'r þeim

Strákar eru eins og klósett .... annað hvort uppteknir eða fullir af skít

Strákar eru eins og loft .... ma'r getur ekki lifað án þeirra

Strákar eru eins og smokkar .... einnota drasl

Strákum má líkja við föt .... ma'r getur valið úr þeim

Strákar eru eins og sæmræmdupróf ... ma'r verður að hafa mikið fyrir að ná þeim og halda í þá

Strákar eru eins og peningar .... ma'r missir þá um leið og ma'r fær þá

Strákar eru eins og auglýsingar .... þú getur ekki trúað einu orði sem þeir segja

Strákar eru eins og kælibox.... ma'r fyllir þá af bjór og fer með þá hvert sem manni langar.

Strákar eru eins og íslensku fjármálamarkaðurinn ... svo óskaplega lengi að þroskast

Strákar eru eins og maskari .... hverfa við fyrstu merski um tilfinningalegt uppnám

Strákar eru eins og banani .... því yngri því stinnari.


Posted at Friday, January 05, 2007 by litla_ljot
Make a comment  




Saturday, August 12, 2006
Long time no see

Jæja dúllur

Er ekki kominn tími til að uppfæra síðuna mína og eitthvað smá gossipp fyrir ykkur. Ég er nú samt ekki mikill kjaftakrókur en ég kannski hef ég eitthvað djúsí.

Það sem hefur gerst í Júlí mánuð var að Ingunn frænka og Gunnar giftu sig. Guðrún systir og Pétur giftu sig. Ég tók Bellu úr sambandi þannig að núna þarf ég ekki að óttast fleiri lóðarí í framtíðinni-yeeeeeesssss...

En þetta var nú allt held ég bara, svo er seinast dagur af útsölu á morgun - mikið er ég fegin

Nokkrar myndiir af litla frænda

http://www.picturetrail.com/gallery/view?username=alexander-arni

-katy

 


Posted at Saturday, August 12, 2006 by litla_ljot
Make a comment  




Saturday, February 25, 2006
Flottari og betri búð...

Já nú opnar bráðum Útilíf í kringlunni aftur og mig hlakkar geðveikt til. Ég er búin að bíða eftir þessu í rúman mánuð. Það verður örugglega geðveikt að gera en bara eins og venjulega. Ég get ekki beðið. Ég byrja á mánudaginn kemur og búðin opnar á miðvikudaginn - á öskudag. Ég væri nú samt alveg til í að kíkja niðrí bæ þennan dag - svo langt síðan síðast (bjó úti svo lengi og missti af öllu æskufjörinu :)) Nei segi nú bara svona.
En allavega ég er að spá í uppfæra síðuna mína og bæta við nokkrum uppskriftum bara svona til að kannski bæta í safnið ykkar ef ykkur vantar eitthvað... og endilega ef þið eruð líka með einhverjar handa mér, endilega látið mig vita

-katy


Posted at Saturday, February 25, 2006 by litla_ljot
Comments (3)  




Tuesday, February 07, 2006
Silvía Nótt

Hvað finnst ykkur um lagið:

http://www.flurl.com/uploaded/Eurovision_lagid_55040.html

Ef þið hafið ekki heyrt það ennþá, þá drífið þið ykkur í það gjörið svo vel...

-katy


Posted at Tuesday, February 07, 2006 by litla_ljot
Comment (1)  




Thursday, February 02, 2006
Kíkið á þetta steplur!!

Þetta fær ykkur örugglega til að brosa smá o,")

1.HVERS VEGNA ERU KARLMENN GÁFAÐARI MEÐAN ÞEIR HAFA MÖK?
(vegna þess að þeir eru tengdir við snilling!)

2.HVERS VEGNA BLIKKA KONUR EKKI AUGUNUM MEÐAN ÞÆR HAFA MÖK?
(þær hafa einfaldlega ekki tíma!)

3.HVERS VEGNA ÞARF MILLJÓNIR SÆÐISFRUMA TIL AÐ FRJÓVGA EGG?
(þær stoppa ekki til að spyrja vegar)

4.HVERS VEGNA HRJÓTA KARLMENN ÞEGAR ÞEIR LIGGJA Á BAKINU?
(pungurinn fellur yfir rassgatið og stöðvar gegnumtrekkinn)

Þið eruð farnar að brosa núna stelpur, er það ekki? ;o)

5.HVERS VEGNA FENGU KARLMENN STÆRRI HEILA EN HUNDAR?
(annars væru þeir riðlandi á fótleggjum kvenna í kokteilboðum)

6.HVERS VEGNA SKAPAÐI GUÐ MANNINN Á UNDAN KONUNNI?
(þú þarft jú gróft uppkast áður en þú gerir lokaútgáfuna)

7.HVE MARGA KARLMENN ÞARF TIL AÐ SETJA KLÓSETTSETUNA NIÐUR?
(hmm, veit ekki.....það hefur ekki gerst ennþá)

8.HVERS VEGNA SETTI GUÐ KARLMANNINN Á JÖRÐINA?
(vegna þess að titrari slær ekki garðinn)


Posted at Thursday, February 02, 2006 by litla_ljot
Make a comment  




Saturday, January 28, 2006
London Beibí!!

Svo er sú saga komin af stað að ég og Óli séum bara að fara frítt til London - já heyrðuði London baby...

Við förum 10. feb. og verðum til 13. feb. Smá helgarferð og við þurfum ekki að borga krónu. Við erum að fara út að borða og auðvitað að sjá Arsenal-Bolton leik. Auðvitað hlakkar okkur geðveikt til - það er ekki hægt annað.

Þetta var nú bara smá til að öfunda ykkur, heimalingana.

En yfir í annað. Ég og Óli ætlum að vera svolítið góð við litlu frænkur mínar, þær Völu Rún, Birnu Sísí og Ingu Rannveigu. Það verður sko Pizzu-partý, bíó og mikið af nammi að fá hér á Hjallabrekku 21. - Óli splæsir o',)

-katy


Posted at Saturday, January 28, 2006 by litla_ljot
Comments (2)  




Tuesday, January 24, 2006
Þrífa, þrífa, þrífa

Í kvöld þarf ég og Óli að þrífa hjá Baug. Það eina sem ég geri virðist vera fyrir Baug. Þetta eru svo mikilir snobbarar þarna niður frá að þau eru alveg að drepast á fullkomnunarsinna. Hvert einasta fingrafar á borðum, stólum, hurðum meirað segja á klósettum verður að fara. Þegar klósettrúllan er ekki einu sinni búin en það eru nokkur blöð eftir - alveg nóg til að fara í svona 10 skipti í viðbót á klósettið, þarf að setja nýja rúllu á, þeim finnst greinilega svo erfitt að lyfta lokinu á ruslatunninni upp og setja rúlluna ofan í þegar hún klárast.

Svo þegar maður kemur þarna niður eftir eru fullt af hálftómum dósum, flöskum, diskum á borðum og eiginlega út úm allt. Þetta fólk kann greinilega ekki að ganga frá eftir sig. Labba 5 skref inn í eldhús - nei það er of langt þangað.

Þetta var bara smáatriði og ég yrðið alla nóttina að skrifa allt saman. En þetta er nóg í bili.

Endilega addið einhverju inn á síðuna mína ef ykkur sýnist vanta eitthvað...

-katy


Posted at Tuesday, January 24, 2006 by litla_ljot
Make a comment  




Sunday, January 22, 2006
Þorrinn...

Já, hann Þorrinn...

Hvers vegna höldum við eiginlega þorrann? Góð spurning - hvorki ég né Óli erum það gáfuð að vita svarið við þessari spurningu og ekki getum við spurt hana Bellu litlu...

Við fórum í þorramat í Holtinu og þar var búið að leggja á borð dýrindis mat - ef það er hægt að kalla það það. Óli fékk strax vatn í munninn og ég var ekki alveg viss hvað þetta var - svo mikið af alls konar einhverju...

Ég verð nú samt að segja að það sem ég át var alveg æði - slátur hitað í örbylgju m/sykri, kartöflumús, rófustappa og kjúlli.

Óli át hákarl, punga, tungur, rolluhaus og eitthvað fleira sem ég man ekki hvað heitir - en best af öllu fannst honum pungarnir sem hann tróð ofan í sig með bestu lyst - og ekki fékk hann koss frá mér það sem eftir var af kvöldinu :)

Bella át líka eitthvað skrýtið - hákarl, harðfisk og sviðasultu með bestu lyst.

-katy


Posted at Sunday, January 22, 2006 by litla_ljot
Make a comment  

Útilíf

Þá er búið að loka Útilíf í Kringlunni v/breytinga. Ég og Harpa tókum kolranga ákvörðun um að fara í Smáralindin í stað Glæsibæjar - því allir aðrir fastastarfsmenn Kringlunnar fóru þangað. Það var bara styttra fyrir mig og Hörpu að fara í Smárann.

Fólkið þar er nú samt alveg ágætt en ekkert spes. Maður þekkir engann og svo eru svo strangar reglur sem maður er ekki vanur. T.d. með matar- og kaffi-tímana. Þá eru 10-15 mín. prósess tekinn í gang um það að ákveða hver á að fara í mat fyrst og allt skrifað niður á blað. Ef maður var í fríi daginn áður VERÐUR maður að fara annar í mat. (Það eru 1. og 2. holl). Annars verður allt vitlaust. En allavega það er bara rúmur mánuður eftir - feels like forever...

-katy


Posted at Sunday, January 22, 2006 by litla_ljot
Make a comment  




Next Page
KATRÍN ER MITT NAFN OG ÉG Á ÞESSA BLOGSÍÐU,
SO DON'T MESS WITH IT!!


<< February 2010 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05 06
07 08 09 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28

Hér eru nokkrir línkar hjá öðrum bloggurum
Aron_feiti
Árni Long-ari
Bylgja
Ingunn
Katrín
Kolla
Maggi
Lóa
Þórunn
Yngvi T.

Endilega kíkið á myndirnar mínar:)

Útilíf
Litla Fólkið
Brúðkaup
Myndir Frá Árinu 2005
Party myndir
Á ferð & Flugi
Spánn 2003
Ólagrín


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed